04.02.2011
slandsvinir kynna srferir snar sumari 2011

Sérferðir Íslandsvina sumarið 2011

Bodensee

Íslandsvinir kynna sérferðir sínar sumarið 2011

Göngu- og útivistarferðir bæði fyrir byrjendur og þá sem ganga lengra.
Hjólaferðir bæði fyrir þá sem hjóla í hvað sem er og sér til ánægju. 
Hreyfing og menning fyrir alla, þar með talda eldri borgara 
Sérhópar fyrir þig og þína. Hafðu samband. 
Ferðir Íslandsvina sumarið 2011  - Gjörið svo vel! 

Fagra Finnland 

Þar sem austrið og vestrið mætast munu íslenskir eldri borgarar njóta sín til fulls. 

20.-26. maí 2011

Fararstjóri Halldór Hreinsson

Gárur Gardavatns - gönguferð

Ítalía og Gardavatnið heilla göngumenn upp úr skónum!  

28. maí - 4. júní 2011

Fararstjóri Brandur Jón Guðjónsson

Þriggja landa hjólaferð umhverfis Bodensee

Þýskaland, Austurríki og Sviss í einum pakka!  

16. – 23. júní 2011

Fararstjóri Helgi Benediktsson 

Alparósir

Útivistar- og gönguferð á fegurstu slóðum Alpanna. Ein af ferðunum sem sló rækilega í gegn í fyrra!

28.7. – 4.8. 2011

Fararstjóri Ása María Valdimarsdóttir

staff

Hafðu samband við okkur!

SHIPOHOJ!

Cuxhaven - Hamburg – Bremen. Hafnarbæir, vinabæir og baðstrendur. Vinalegra gerist það ekki!

21.-28. júní  2011

Fararstjóri Anna Sigurborg Ólafsdóttir

Fjallavötnin fagurblá - og fjöllin þar á milli

Gönguferð frá Austurríki til Þýskalands, takk fyrir! Ótrúleg fegurð og þú getur þetta!

2. - 9. ágúst 2011

Fararstjóri Helgi Benediktsson

Gardavatn – hjólreiðaferð

Ferðin fékk mikið lof í fyrra, enda draumur hjólreiðamannsins!

22. – 29. ágúst 2011

Fararstjóri Brandur Jón Guðjónsson

Dónárdraumur, Passau – Vínarborg

Hjólaferð meðfram hinni einu og sönnu bláu Dóná. 
Ekki dónalegt það!

1.-8. september 2011

Fararstjóri Brandur Jón Guðjónsson

 

Hjá Íslandsvinum starfar hæft starfsfólk með mikla reynslu.   Við tökum vel á móti þér.   

Gleðilegt ferðasumar 2011

Með kveðju,
Starfsfólk Íslandsvina

| More