25.01.2011
tala 2 brottfarir 19. og 26.febrar

Laus sæti til Ítalíu 19. og 26.febrúar.  

Brixen-Plose í Suður-Tírol á Ítalíu er gott skíðasvæði fyrir alla fjölskylduna. Þar finna allir eitthvað við sitt hæfi og auðvelt er að hittast í hádeginu þótt hópurinn skíði ekki saman.  

Skíðarúta fer frá Brixen eða hótelinu að skíðasvæði og tekur ferðin um 10 til 20 mínútur.  Á skíðasvæðinu er hægt að taka á leigu geymsluskáp fyrir skíðaútbúnaðinn til að sleppa við bera skíðin heim á hverjum degi.   

Ef einhver vill taka sér frí frá skíðaiðkun í einn dag eða fleiri, er margt í boði í Brixen, t.d. vatnaveröldin Acquarena, úrval búða, veitingastaða, kaffihúsa og margt fleira. 

Nokkrar heimasíður til að skoða www.brixen.org   www.plose.org  www.acquarena.com/de/acquarena.html

| More