Hvernig væri að skella sér á skíði til Tékklands? Spindlerúv Mlýn svæðið er besta skíðasvæði Tékklands hvort sem litið er til svigskíða-, snjóbretta- eða gönguskíðaiðkunar. Gist er á ****Hótel Harmony sem er miðsvæðis og hægt er að renna sér á skíðunum beint í brekkurnar frá hótelinu. Góð fjölskylduherbergi og góð aðstaða fyrir börn. Flogið er til Berlínar og keyrt til Tékklands. Verð 169.900 miðað við tvo í herbergi og skíðapassi innifalinn.