Íslandsvinir bjóða í vetur meira úrval af skíðaferðum en nokkru sinni áður. Aðal skíðasvæðin sem við ætlum að heimsækja eru Saalbach-Hinterglemm í Austurríki og Brixen- Plose skíðasvæðið á Ítalíu og síðast en ekki síst er hin árlega ferð okkar til Tékklands í mars. Einnig er í undirbúningi sérferð um jól og áramót ef næg þátttaka fæst.
Áherslur okkar við val á skíðastöðum er að þeir séu nokkuð snjó öruggir, fjölbreyttir og fjölskylduvænir staðir og ekki síður að það sé frekar stutt keyrsla á skíðasvæðin frá flugvelli og gististaðir sem við bjóðum séu vel staðsettir. Allt þetta gerir það að verkum að ferðir Íslandsvina þykja áhugaverða fyrir alla skíðaáhugamenn, byrjendur sem lengra komna. Fararstjórar í ár verða Halldór Hreinsson, Elíza Guðmundsdóttir og Helgi Benediktsson. Öll hafa þau áratuga reynslu og góða þekkingu á skíðasvæðunum.
Ítalía
Brixen-Plose sem er nýr áfangastaður hjá Íslandsvinum, er staðsett í Suður-Tíról á Ítalíu í norður hluta Dólómítanna. Flogið verður til Verona, þaðan er tveggja klukkustundar akstur til Brixen. Skíðasvæðið næst Brixen er Plose sem er oft nefnt eitt best geymda leyndarmál Ítalíu. Flestir gististaðir okkar eru í Plose fjallinu en einnig bjóðum við upp á gistingu í Brixen sem er elsti bær Suður-Tíról og mikill menningarbær.
Austurríki
Saalbach-Hinterglemm er skíðastaður sem margir Íslendingar þekkja, enda eitt af vinsælustu skíðasvæðum Austurríkis. Flogið verður til München og tekur um 2 ½-3 tíma að aka á staðinn . Fjölbreytt og stórt skíðasvæði og líflegt „aprés-ski“ þannig að allir finna eitthvað við sitt hæfi. Gististaðir eru bæði í Saalbach og Hinterglemm og stutt í lyftur.
Tékkland
Spindlerúv Mlýn er stærsti skíðastaður Tékklands og hefur heillað margan landann sem farið hefur með okkur þangað. Við höfum farið með 14 hópa þangað og allir hafa komið glaðir heim, þar sem aðbúnaður á Hótel Harmony, skíðasvæðið, fjölbreytileiki fjalla þorpsins Spindlerúv Mlýn, og ekki síður matarmenning Tékka hefur glatt marga. Skíðasvæðið er með 25 km af brekkum sem henta öllum skíðaiðkendum hvort sem þeir eru að byrja eða lengra komnir, þá eru frábær svæði fyrir snjóbretta iðkendur, og síðast en ekki síst göngu skíðaiðkendur.
Skíðaferðirnar í ár eru í samvinnu við Fjallakofann sem selur útivistarvörur. Fyrir skíðamanninn má þar t.d. finna skíðahjálma, snjógleraugu, sokka, bakpoka og ýmislegt fleira. Þeir sem ferðast með okkur njóta sérkjara í Fjallakofanum.
Hafðu samband við Elízu í síma 510-9504 og fáðu upplýsingar um skíðaferðirnar.