Ferðaskrifstofan Íslandsvinir h.f. hefur verið starfrækt frá 1998. Hún er í eigu Halldórs Hreinssonar. Einnig starfar hún undir Iceland Explorer fyrir erlenda viðskiptavini í ferðum um Ísland.
Fyrst og fremst eru það útivistarferðir sem boðið hefur verið uppá undanfarin ár og hafa þar göngu- hjólaferðir og skíðaferðir verið vinsælastar, en núna eiga menningarferðir af ýmsum toga vaxandi fylgi að fagna. Sanngjarnt verð og litlir hópar ásamt góðri fararstjórn er það sem er leitast við að bjóða viðskiptavinum upp á.
Flestar ferðir eru hópferðir en einnig aðstoðum við hópa við að bóka flug, hótel og annað í fyrirfram ákveðnar ferðir.
Hafið samband á info@explorer.is