Umsagnir viskiptavina

Hér að neðan getur þú lesið umsagnir viðskiptavina okkar. 

Ágætu starfsmenn Íslandsvina !
Okkur langar til að þakka fyrir ógleymanlega  ALPARÓSAFERÐ 10-19/8. 
algjör snilld.
Stór hluti af þessari snilld er þessi frábæri fararstjóri sem Ása María er.
Hún hefur gott skipulag á hlutunum og mikla hæfileika til að miðla fróðleik og þekkingu
sem við kunnum vel að meta. Auk þess er hún bráðskemmtileg og með húmorinn í lagi
-- ef þið hafið ekki vitað það--  
Farkostur  og hótel voru af bestu gerð  og bara allt upp á það besta.
Við óskum Íslandsvinum alls hins besta og vonum  að við eigum samleið síðar.
Góðar kveðjur,
Stína, Högni
Döbba, Elli
Júlla, Trausti
Búbba og Þröstur

 

 

Umsögn um ferðina „Alparósir“ 10.-19. ágúst 2010. Fararstjóri: Ása María Valdimarsdóttir

„Ágætu starfsmenn Íslandsvina !
Okkur langar til að þakka fyrir ógleymanlega  ALPARÓSAFERÐ 10-19/8. algjör snilld.
Stór hluti af þessari snilld er þessi frábæri fararstjóri sem Ása María er.
Hún hefur gott skipulag á hlutunum og mikla hæfileika til að miðla fróðleik og þekkingu
sem við kunnum vel að meta. Auk þess er hún bráðskemmtileg og með húmorinn í lagi
-- ef þið hafið ekki vitað það--  
Farkostur  og hótel voru af bestu gerð  og bara allt upp á það besta.
Við óskum Íslandsvinum alls hins besta og vonum  að við eigum samleið síðar.

Góðar kveðjur,
Stína, Högni
Döbba, Elli
Júlla, Trausti
Búbba og Þröstur“


Umsögn um ferðina „Gönguferð - Gardavatn“ 5.-12. júní 2010. Fararstjóri: Brandur Jón Guðjónsson

„Við vorum mjög ánægðar með Gardavatnsferðina í júní. Brandur er frábær fararstjóri, hugsunarsamur, hlýr og einstaklega hjálpsamur. Ég og dóttir mín gefa honum hæstu einkunn.   

Magðalena“


Umsögn um ferðina "Gardavatnið - hjólaferð" 21. - 28. ágúst 2010. Fararstjóri: Brandur Jón Guðjónsson

Þrátt fyrir að hafa til skamms tíma notað reiðhjól sem daglegan samgöngumáta var hugmyndin um hjólaferð á erlendri grundu huglæg áskorun.  Gat verið hvíld í því að þjarkast um dögum saman á hjóli í stað þess að liggja út af í sólinni?  Á kynningu um tilhögun ferðarinnar kom ljós að þrátt fyrir þétt skipulag skyldi heilbrigð skynsemi ráða för.  Seglum yrði hagað eftir vindi og ferðalangar ættu að lifa ferðina í stað þess að hún lifði þá.

Riva del Garda hjólaferðinni verður vart lýst fyrir þeim sem ekki hafa upplifað ferðamáta af þessu tagi á eigin skinni.  Við komuna á áfangastað vék blanda eftirvæntingar og spennu fljótt fyrir öryggis- og frelsistilfinningu.  Líkamlegri hreyfingu fylgir andleg vellíðan og viðmót allra var gott.  Nálægðin við náttúruna og daglegt líf heimamanna líkist því að anda að sér sögu í stað þess að lesa hana.  Landslagið einstakt og að sama skapi veitingar í mat og drykk.  Fólk á miðjum aldri urðu sem börn í sjálfskipuðu eigin ævintýri.  -  Ferðin hefur haft þann eftirmála helstan að maður er knúinn til slíkrar farar á ný.

GRB.

 

 

 

| More