9. til 16.mars 2012

Boðið verður upp á 1 brottför í febrúar.  Vikuferðir sem hægt verður að framlengja í 11 daga ferð. 

 

Ferð Tékkland 
Tími 09. til 16.mars 2012
Fararstjóri Íslensk fararstjórn
Fjöldi Lágmark 15 manns
Fyrir hverja Fyrir allt skíðaáhugafólk
Verð Frá 209.900 kr á mann í tvíbýli.
ATH 6 dagar á skíðum skíðapassi innifalinn

 

Ferðskrifstofan ÍSLANDSVINIR – ICELAND EXPLORER stendur fyrir enn einni skíða-ævintýraferðinni til TÉKKLANDS.


 
Þó að þetta sé fyrst og fremst skíðaferð er líka hægt að skoða sögulegar minjar, bragða á fjölbreyttum mat og komast í náin kynni við tékkneska og pólska fjallamenningu þar sem dvalið verður í fjallaþorpinu Spindlerúv Mlýn sem er í u.þ.b. 700 m.y.s. og liggur að landamærum Póllands. Ferðinni lýkur svo í hinni heillandi höfuðborg Þýskalands, Berlin.

Ferðatilhögun:

9. mars 2011 (föstudagur)
Flogið til Berlínar með Iceland Express kl. 08:55 og lent þar kl. 13:20.  
Ekið áleiðist til Tékklands, en öll leiðin er um 365 km (4 - 5 tímar akstur). 

10.- 15. mars (laugardagur til fimmtudags)
Eftir morgunverð er haldið áfram og ekinn síðasti spölurinn til Spindlerúv Mlýn, þar sem skíðaævintýrið hefst. Dvalið þar á 4 stjörnu Harmony Club Hotel.  Morgun- og kvöldverður.
 
16. mars (föstudagur)

Ekið til Berlínar og flogið þaðan heim kl. 14:20. Áætluð lending á Íslandi kl. 16:50.   


Spindlerúv Mlýn svæðið er besta skíðasvæði Tékklands hvort sem litið er til svigskíða-, snjóbretta- eða gönguskíðaiðkunar eins og sjá má nánar á þessari síðu: http://www.skiarealspindl.cz/.
 
Hótel Harmony sem dvalið verður á í Spindlerúv Mlýn er staðsett miðsvæðis í hæstu fjöllum Tékklands og stendur sjálft í um 800 m.y.s. Það er nýtískulegt og býður uppá mjög góða aðstöðu fyrir sína gesti, en hægt er að skoða það nánar á heimasíðu þeirrawww.harmonyclub.cz . Þetta er 4 stjörnu hótel með öllu, og hægt er að renna sér beint út á skíðasvæðið. Góðar byrjenda- og barnabrekkur eru við hótelið þar sem m.a. er boðið upp á kennslu.
 
Pólland. Einn daginn verður boðið uppá ferð til Póllands í Karpach (Tatra) fjöllin, þar sem við komumst í færi við pólska menningu, listir og síðast en ekki síst pólskt fjallakjöt sem rennt er niður með pólskum drykkjum. Tilvalið fyrir þá sem vilja taka hvíld frá skíðaiðkun í einn dag (Ath. valkvætt og þessi dagsferð er ekki innifalin í heildarverði ferðarinnar).

Verð
kr. 208.900,- pr. mann í tveggja manna herbergi
kr. 219.900,- pr. mann í eins manns herbergi

Innifalið er flug, flugvallaskattar og önnur gjöld tengd fluginu. 7 nætur á Hótel Harmony 4 stjörnu hóteli með hálfu fæði (morgunverður og kvöldverðarhlaðborð), aðgangur að sundlaug. Íslensk fararstjórn. Skíðapassi.  Ferðir til og frá flugvelli og milli gististaða erlendis. 
 
Ekki innifalið: dagsferðin til Póllands og annað sem ekki er talið upp í innifalið.
 
Staðfestingargjald, kr. 25.000 á mann þarf að greiða við skráningu í ferðina. 
 
Lágmarksþátttaka er 20 manns. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að hætta við ferð 7 vikum fyrir brottför ef þátttaka er ekki  næg og mun þá að fullu endurgreiða staðfestingargjald.

Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast í þessu PDF skjali hér.


Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9500 eða sendið fyrirspurn á info@explorer.is

| More