| Ferð | Skíðaferð til Tékklands |
| Tími |
27. febrúar - 5.mars 2012
|
| Fararstjórn | Halldór Hreinson |
| Fjöldi | Lágmark 15 manns |
| Fyrir hverja | Fyrir allt skíðaáhugafólk - ekki síst fjölskyldur |
| Verð |
Miðað við tveggja manna herbergi 208.900 miðað við eins manns herbergi |
| ATH |
Einstaklega gott verð. Skíðapassi innifalinn |
Ferðskrifstofan ÍSLANDSVINIR – ICELAND EXPLORER verður með skíðaferðir til TÉKKLANDS í febrúar 2012.
| Ferðatilhögun: 27.febrúar 2012 |
Horfðu á skemmtilegt myndband frá ferð Íslandsvina til Spindlerúv Mlýn!
Þó að þetta sé fyrst og fremst skíðaferð er líka hægt að skoða sögulegar minjar, bragða á fjölbreyttum mat og komast í náin kynni við tékkneska og pólska fjallamenningu þar sem dvalið verður í fjallaþorpinu Spindlerúv Mlýn sem er í u.þ.b. 700 m.y.s. og liggur að landamærum Póllands.
Spindlerúv Mlýn svæðið er besta skíðasvæði Tékklands hvort sem litið er til svigskíða-, snjóbretta- eða gönguskíðaiðkunar eins og sjá má nánar á þessari síðu: http://www.skiarealspindl.cz/.
Hótel Harmony sem dvalið verður á í Spindlerúv Mlýn er staðsett miðsvæðis í hæstu fjöllum Tékklands og stendur sjálft í um 800 m.y.s. Það er nýtískulegt og býður uppá mjög góða aðstöðu fyrir sína gesti, en hægt er að skoða það nánar á heimasíðu þeirra www.harmonyclub.cz . Þetta er 4 stjörnu hótel með öllu, og hægt er að renna sér beint út á skíðasvæðið. Góðar byrjenda- og barnabrekkur eru við hótelið þar sem m.a. er boðið upp á kennslu.
Pólland. Einn daginn verður boðið uppá ferð til Póllands í Karpach (Tatra) fjöllin, þar sem við komumst í færi við pólska menningu, listir og síðast en ekki síst pólskt fjallakjöt sem rennt er niður með pólskum drykkjum. Tilvalið fyrir þá sem vilja taka hvíld frá skíðaiðkun í einn dag (Ath. valkvætt og þessi dagsferð er ekki innifalin í heildarverði ferðarinnar).
|
Verð kr. 219.900,- pr. mann í eins manns herbergi |
Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Forfallatrygging er ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í mörgum tilfellum er forfallatrygging innifalin í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum fólks og er viðskiptavinum bent á að hafa samband við kortafyrirtæki sitt eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála. Verð ferðar er háð almennum gengisbreytingum, en breytist ekki eftir að hún er að fullu greidd.
Ferðaskrifstofan Íslandsvinir er aðili að SAF (Samtök ferðaþjónustunnar, sjá www.saf.is) og því gildaalmennir skilmálar samtakanna um allar ferðir ferðaskrifstofunnar, auk þess sem viðkomandi flugfélag getur verið með sína skilmála til viðbótar.