| Ferð | Skíðaferð, Saalbach - Hinterglemm |
| Tími |
Þrjár ferðir eru í boði. Takmarkaður sætafjöldi í hverja ferð. |
| Fararstjórn |
Halldór Hreinsson 28.jan-3.feb. Erlend fararstjórn; 11.- 18.febrúar 28.febrúar til 3.mars |
| Flug |
Flogið með Icelandair til og frá München |
| Ferðir á staðinn |
Innifalinn akstur til og frá flugvelli ytra. Tekur um 2 1/2 klst hvor leið |
Saalbach- Hinterglemm er einn af vinsælli og þekktari skíðastöðum Austurríkis,- í Glemmdal í Salzburg héraði, um 20 km akstur frá Zell am See. Litlu, líflegu systurbæirnir Saalbach og Hinterglemm eru í um 1000 m hæð y.s. og þar snýst allt um skíði og útiveru á veturna. Auk fjölda gististaða eru þar verslanir, veitingastaðir og önnur nauðsynleg þjónusta og fjölbreytt afþreying fyrir gesti og gangandi. Ekki síst er góð stemmning síðdegis þegar ánægðir og mátulega þreyttir skíðaiðkendur koma úr fjallinu og hittast á einhverjum „aprés ski“ barnum áður en haldið er á hótel í gufuna eða matinn.
Skíðasvæðið sjálft er þekkt fyrir snjóöryggi og fjölbreytni, þ.e. þar finna allir eitthvað við sitt hæfi, hvort sem um skíða-, bretta- eða gönguskíðafólk er að ræða, byrjendur eða lengra komna, börn og fullorðna. Heimsmeistaramót á skíðum var haldið hér 1991.
Svæðið er með ca 200 km skíðabrekkur, bláar (90 km), rauðar (95 km) og svartar (15 km) og með 55 skíðalyftur og kláfa sem geta flutt allt að 95.000 manns á klukkustund upp í fjall og á milli svæða. Ekki má gleyma skemmtilegum 10 km gönguskíðabrautum og ef þetta dugar ekki, má fara á skauta, í sleðaferðir, snjóbrettagarð og í alls kyns uppákomur sem auglýstar eru nánar á staðnum. Víðsvegar á skíðasvæðinu eru áningarstaðir, - fjallakofar, barir og veitingastaðir þar sem gott er að setjast niður og njóta næringar, hvíldar og sólar áður en áfram er haldið.
Þeir sem eru að byrja á skíðum eða þeir sem vilja hressa uppá skíðakunnáttuna geta farið í skíðaskóla eða einkakennslu, og þeir sem eiga ekki skíðabúnað geta leigt hann á staðnum. Sem sagt: eitthvað fyrir alla. Skelltu þér með!
Vefsíða Saalbach-Hinterglemm | Myndir frá Saalbach-Hinterglemm
Sjá verðskrá | Hagnýtar upplýsingar
Nokkrir gistimöguleikar í boði:
Í boði eru nokkrir gististaðir og takmarkaður fjöldi herbergja á hverjum stað. Í flestum tilvikum er hægt að fá 3ja manna eða fjölskylduherbergi en það verður að staðfesta í hvert sinn. Barnaafsláttur er mismunandi eftir hótelum, en barnaafsláttur fæst einungis ef barn er með tveimur fullborgandi í gistingu.
Hótelin: Pension Schattberg | Hotel Kristiana | Clubhotel Sonnalp | Hotel Sonne | Hotel Almrausch
|
|
||
| Staðsetning: | Um 900m frá miðbæ Saalbach, hægt að skíða heim á hótel. | |
| Herbergi: | 26 fm góð herbergi með setkrók, sér baðherbergi, hárþurrku, síma, útvarpi, sjónvarpi og öryggishólfi (gjald). Herbergin rúma allt að fjóra. |
|
| Aðstaða á hóteli: |
Lyfta, skíðakjallari, öryggishólf í móttöku, internet (gegn gjaldi).
Vatnsgufubað og sauna, hvídaraðstaða og gegn gjaldi ljósabekkir og nudd.
Veitingastaður, internet (gegn gjaldi), lyfta, skíðakjallari, billjard og pílukast (gegn gjaldi). Innisundlaug, sauna, vatnsgufa, nuddpottur, líkamsræktartæki og ljósabekkur, nudd og snyrting gegn gjaldi. |
|
| Fæði: | Morgunverðarhlaðborð, síðdegishressing, fimm rétta kvöldverður, 1x í viku er Galakvöldverður. | |
| Verðdæmi: | Frá 234.900 á mann í tvíbýli |
|
|
|
||
| Staðsetning: | Í brekku mót suðri í Hinterglemm, um 150 m frá Zwölferkogel skíðakláfnum. Um 7 mínútna gangur inn í miðbæ Hinterglemm. | |
| Herbergi: | Rúmgóð herbergi með sér baðherbergi, útvarpi, sjónvarpi, síma, hárþurrku og öryggishólfi. Hægt að fá þriggja manna herbergi (aukarúm) |
|
| Aðstaða á hóteli: |
Lyfta, skíðakjallari, öryggishólf í móttöku, internet (gegn gjaldi).
Vatnsgufubað og sauna, hvídaraðstaða og gegn gjaldi ljósabekkir og nudd.
Lyfta, internet gegn gjaldi, sjónvarpsherbergi, skíðakjallari, sólbaðsaðstaða með bekkjum. Líkamsræktaraðstaða, gufuböð og innisundlaug. Ljósabekkir og nudd gegn gjaldi. |
|
| Fæði: | Morgunverðarhlaðborð, fjögurra rétta kvöldverður, síðdegishressing kl. 16-17 og komudrykkur. | |
| Verðdæmi: | Frá 204.900 kr. á mann í tvíbýli |
|
|
|
||
| Staðsetning: | Í byrjun Hinterglemm. Um 100 m að næstu lyftu, hægt að skíða heim að hóteli. | |
| Herbergi: | Rúmgóð standard herbergi með sér baðherbergi, útvarpi, sjónvarpi, minibar, öryggishólfi og internettengingu. Hægt að sérpanta superior herbergi eða fjölskylduherbergi. |
|
| Aðstaða á hóteli: |
Lyfta, skíðakjallari, öryggishólf í móttöku, internet (gegn gjaldi).
Vatnsgufubað og sauna, hvídaraðstaða og gegn gjaldi ljósabekkir og nudd.
Lyfta, sjónvarpsherbergi, a la carte veitingastaður, skíðakjallari, internetaðstaða (gegn gjaldi). Sauna, vatnsgufa, líkamsræktarherbergi, ljósaklefar og nudd gegn gjaldi. |
|
| Fæði: | Morgunverðarhlaðborð, fjögurra rétta kvöldverður, | |
| Verðdæmi: | Frá 249.900 á mann í tvíbýli | |
|
|
||
| Staðsetning: | 400 m frá miðju Salbach og strætóstöð. | |
| Herbergi: |
Einföld en vistleg herbergi með sér baðherbergi, útvarpi, sjónvarpi.). |
|
| Aðstaða á hóteli: | Internet gegn gjaldi í móttöku, skíðakjallari. Sauna. | |
| Fæði: | Morgunverðarhlaðborð. | |
| Verðdæmi: | Frá 169.900 kr. á mann í tvíbýli. | |
|
|
||
| Staðsetning: | Er í Saalbach. 2 mínútna gangur í skíðalyftu og miðbæinn. | |
| Herbergi: | Einföld en notaleg standard herbergi með sér baðherbergi, útvarpi, sjónvarpi og svölum. Hægt að fá þriggja manna herbergi (aukarúm). | |
| Aðstaða á hóteli: |
Lyfta, skíðakjallari, öryggishólf í móttöku, internet (gegn gjaldi).
Vatnsgufubað og sauna, hvídaraðstaða og gegn gjaldi ljósabekkir og nudd.
Lyfta, skíðakjallari, setustofa, öryggishólf í móttöku, internet (gegn gjaldi).Vatnsgufubað og sauna, hvídaraðstaða með vatnsrúmum og gegn gjaldi ljósabekkir og nudd. |
|
| Fæði: | Morgunverðarhlaðborð, þrírétta kvöldverður, salatbar. | |
| Verðdæmi: | Frá 238.800 kr. á mann í tvíbýli. | |
Ferðaskrifstofan Íslandsvinir og fararstjórar hennar áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Forfallatrygging er ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í mörgum tilfellum er forfallatrygging innifalin í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum fólks og er viðskiptavinum bent á að hafa samband við kortafyrirtæki sitt eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála. Verð ferðar er háð almennum gengisbreytingum, en breytist ekki eftir að hún er að fullu greidd.
Ferðaskrifstofan Íslandsvinir er aðili að SAF (Samtök ferðaþjónustunnar, sjá www.saf.is) og því gilda almennir skilmálar samtakanna um allar ferðir ferðaskrifstofunnar, auk þess sem viðkomandi flugfélag getur verið með sína skilmála til viðbótar.