Katschberg
Ferð Skíðaferð, Katschberg
Tími

3 ferðir eru í boði. Takmarkaður sætafjöldi í hverja ferð.
28.jan. til 3.feb.
11.-18. feb. 
25.febrúar -3.mars

Fararstjóri Elíza Guðmundsdóttir
Flug

Leiguflug með Icelandair til og frá München

Ferðir á staðinn

Innifalinn akstur til og frá flugvelli ytra. Tekur um 3 klst hvor leið.

Yfirlitsmynd af Katschberg

 

Hvað er betra en skíðafrí á stað sem hefur upp á allt að bjóða!  

 Katschberg er skíðaparadís sem bíður upp á 66 km af brekkum – svo kemur  maður á hið hlýlega og fjölskylduvæna Hinteregger Hótel.  

Þorpið er í 1.650m hæð yfir sjávarmáli. Hvort sem áhugi er fyrir skíðabrekkunum, sleðaferðum, gönguskíðum eða skautum er allt til staðar í Katschberg. Ótakmörkuð skemmtun. Það er einnig margt í boði fyrir þá sem hungrar í annars konar upplifun og gott úrval veitingastaða fyrir matgæðinga.

Hægt er að skíða beint frá hótelinu í skíðabrekkurnar. Sleðabraut og göngubraut eru handan við hornið, veitingaskálarnir eru aðeins í nokkurra mínútna fjarlægð með lyftu og börnin eru sótt á hótelið og skutlað til baka úr skíðaskólanum með strætó eða hestvagni. Þannig eiga skíðafrí fyrir alla fjölskylduna að vera. Mikið er innifalið í verði.  Fjölskyldan Hinteregger leggjur sig alla fram um að þið eigið afslappaða, streitulausa og hlýlega dvöl með skemmtilegum minningum og þeirra slagorð er því: Við höfum yndi af gestum okkar.

 ****Fjölskylduhótelið Hinteregger

Sá sem vill gleðja börnin sín og vill fá hið fullkomna fjölskyldufrí ætti svo sannarlega ekki að vera svikinn af hinu fjögurra stjörnu Hinteregger hóteli.  

Meðal þess sem hægt er að gera meðan á dvöl stendur er á skíði 2 x í viku frá Gamskogel að kvöldi til niður 1,5 km flóðlýsta brekkuna.

Lyftur og brekkur

  • Brekkur;70km þar af 10 bláar, 50km rauðar og 10km svartar. 
  • Lyftur: 16 lyftur. 

Einnig er mjög góðir slóðar fyrir gönguskíði.  

 

Gisting

Boðið verður upp á gistingu á Fjölskylduhótelinu Hinteregger.  Hægt að fá 3ja og 4ra manna fjölskylduherbergi en það verður að staðfesta í hvert sinn. Barnaafsláttur fæst einungis ef barn er með tveimur fullborgandi í gistingu.  

Hótelið:      | Hotel Hinteregger |  


Hotel Hinteregger
StjarnaStjarnaStjarnaStjarna

 

 

Staðsetning:  Í miðbæ Katschberg. Skíðað beint frá hóteli á skíðasvæðið.  
Herbergi:  Rúmgóð herbergi  með sér baðherbergi,útvarp, sjónvarpi og öryggishólfi. Hægt að fá þriggja og fjögurra manna herbergi (aukarúm). Einstaklingsherbergi eru í boði. Ekki er hægt að lofa herbergi með svölum.  
Aðstaða á hóteli:
Lyfta, skíðakjallari, öryggishólf í móttöku, internet (gegn gjaldi).
Vatnsgufubað og sauna, hvídaraðstaða og gegn gjaldi ljósabekkir og nudd. 

Lyfta, skíðakjallari og morgunmatur. Barnapössun frá kl. 09.00 til 18.00. Ýmislegt gert fyrir börnin, sérstakt barnaprógram. 

Mjög góð aðstaða með innisundlaug, sauna og líkamsræktarherbergi. 1.500 m2 wellness og spa veröld.  Hægt er að fá baðslopp.  

Fæði: 

Hálft fæði, morgunmatur og 4ra rétta kvöldverður. Súpa og 1 barnaréttur ásamt heimabökuðum kökum í boði í hverju hádeginu.  Ávexir og te í boði á wellnesssvæði og djús fyrir börnin. 

Verðdæmi: Frá 219.000 kr. á mann í tvíbýli
Katschberg tilheyrir Kärnten en liggur á milli Kärnten og Salzburg 

Katschberg er lítið fjallaþorp með góða skíðamöguleika. Skíðasvæðið er snjóöruggt og fjölskylduvænt. Þar eru 66 km af skíðabrekkum sem henta öllum, Skíðaskólar eru til staðar og einnig er hægt að leigja skíði og útbúnað ef þess er óskað.  

Út um allt er að finna veitingastaði og bari. Afþreying af ýmsu tagi er  í boði, s.s. leiksvæði, töfrateppi, brettagarður og sleðabraut


Vefsíða Katschberg   |  Myndir frá Katschberg

 Hagnýtar upplýsingar


 

 

Innifalið í verði: Flug, flugvallarskattar, ferðir til og frá flugvelli erlendis, gisting í 7 nætur, fæði eins og tilgreint er.  
SKILMÁLAR OG VERÐ
Uppgefið verð er staðgreiðsluverð og miðast við gengi evru 20. ágúst 2011
Staðfestingargjald kr. 25.000,- þarf að greiða innan 7 daga frá pöntun. Athugið að staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt ef til afbókunar kemur.
Lokagreiðsla
Til að staðgreiðsluverð gildi þarf að greiða ferð að fullu í síðasta lagi 7 vikum fyrir brottför, annars hækkar verð um 5%. 
Engin lágmarksþátttaka.

Ferðaskrifstofan Íslandsvinir og fararstjórar hennar áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.

 



Forfallatrygging er ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í mörgum tilfellum er forfallatrygging innifalin í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum fólks og er viðskiptavinum bent á að hafa samband við kortafyrirtæki sitt eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála. Verð ferðar er háð almennum gengisbreytingum, en breytist ekki eftir að hún er að fullu greidd.

 



Ferðaskrifstofan Íslandsvinir er aðili að SAF (Samtök ferðaþjónustunnar, sjá www.saf.is) og því gildaalmennir skilmálar samtakanna um allar ferðir ferðaskrifstofunnar, auk þess sem viðkomandi flugfélag getur verið með sína skilmála til viðbótar.

PDF skjal með þssum upplýsingum má sjá hér.

Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9500 eða sendið fyrirspurn á info@explorer.is
 
| More